Námskeið í TextílLab í febrúar, mars og apríl!

Textílmiðstöð Íslands býður upp á stutt námskeið í TextílLab í febrúar, mars og apríl! Hvert námskeið er sjálfstætt og haldið á eftirfarandi miðvikudögum kl. 16:00 - 18:00:  
 
📅  4. febrúar: Nálaþæfing
📅  11. febrúar: Flos (tufting) 
📅  18. febrúar: Stafrænn útsaumur
📅  11 mars: Nálaþæfing
📅  18. mars: Flos (tufting) 
📅  1. apríl: Nálaþæfing
📅  15. apríl: Stafrænn útsaumur 
📅  22. apríl: Flos (tufting) 
 
Námskeiðin henta bæði byrjendum og lengra komnum.
 
Einnig er hægt að bóka tíma síðasta miðvikudag í hverjum mánuði kl. 16:00–18:00. Þessi opnunartími er sérstaklega ætlaður þeim sem eiga erfitt með að komast í Textíllabið á hefðbundnum opnunartíma. Tíminn hentar einnig vel fyrir vinahópa, vinnustaði, saumaklúbba o.fl.
 
Skráning er í vefverslun (,,nám")! Takmarkað pláss – tryggðu þér sæti ✨