Námsver í Kvennaskólanum & Próf

Textílmiðstöð Íslands býður upp á aðstöðu fyrir háskólanám og fullorðinsfræðslu með aðgengi að fjarfundabúnaði og próftöku í samstarfi við háskóla, framhaldsskóla og símenntunarstöðvar. Starfsmenn aðstoða nemendur ef þörf er á, sitja yfir prófum (sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan) og hafa umsjón með námsveri í Kvennaskólanum. 

Á Norðurlandi vestra eru starfandi fjögur námsver, á Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd og Sauðárkróki. Sveitarfélögin reka námsverin, hvert á sínu svæði. Í námsverinu í Kvennaskólanum er fjarfundabúnaður, háhraðanet og kaffiaðstaða. Nemendur geta haft aðgang að námsverinu utan skrifstofutíma. Námsverin eru ætluð háskólanemum í fjarnámi auk annara fjarnema. Námsver er staðsett í suðurenda hússins sem snýr að Heimilisiðnaðarsafninu. Fleiri upplýsingar um námsver má finna á heimasíðu Farskólans, www.farskolinn.is. Ef þú hefur í huga að taka fjarpróf í Kvennaskólanum og hefur ekki gert það áður, hafðu þá samband við skólann þinn. 

Ágætu háskólanemendur sem huga að próftöku hjá Textílmiðstöð Íslands:
Textílmiðstöð Íslands er með samning við ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar og þjónustar nemendur í námi við háskóla sem vilja taka próf í heimabyggð. Sá samningur nær ekki til nemenda í framhaldsskólanámi. Sú breyting hefur orðið að nú er tekið gjald fyrir hvert próf að upphæð 4000 krónur. Þetta er gert að höfðu samráði við samstarfsaðila okkar Farskólann miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra. Það er þó aldrei greitt fyrir fleiri en 3 próf á önn. Endilega greiðið samdægurs! 

Við viljum minna á að allt skipulag og skráning í próf liggur hjá viðkomandi skóla. Ef þú hefur í huga að taka fjarpróf í Kvennaskólanum og hefur ekki gert það áður, hafðu þá samband við skólann þinn. Nemendur þurfa að ganga úr skugga um að tölvan er tilbúin í próf skv. kröfum viðkomandi skóla áður en þeir koma til okkar!

Hægt að greiða með kreditkort hér

Einnig er hægt að millifæra (sendið tölvupóst á textilmidstod@textilmidstod.is þar sem nafn greiðanda kemur fram): Reikningsnúmerið er 0307 13 127093; kt. 460712 0410.

Við viljum benda þeim próftökum sem eru að taka próf í Kvennaskólanum á að margþætt starfsemi er í húsinu og ekki alltaf hægt að tryggja að það sé enginn hljóð enda húsið gamalt og hljóðbært. Því viljum við biðja nemendur sem eru viðkvæmir fyrir hávaða að taka með sér heyrnarhlífar til öryggis. 

  Námsver í Kvennaskólanum.