THREADs 2024–2027: „Textile and Habiliment Reuse for the Environment and NPA Area Development“ er verkefni styrkt af INTERREG.
Meðal samstarfsaðila eru Kajaani háskólinn í Finnlandi, sem leiðir verkefnið, Háskólinn í Borås, Luleå Miljöresurs AB (Svíþjóð), Western Development Commission og Technological University of the Shannon (Írland), Remiks Husholdning AS (Noregi) og Textílmiðstöð Íslands. Verkefnið ber yfirskriftina „Frá hönnun til förgunar“ og beinist að textílúrgangi – hvernig söfnun hans fer fram, hvað verður um úrganginn og hvernig hægt er að endurvinna og endurnýta hann. Sérstök áhersla er lögð á vistvæna textílhönnun og leiðir til að draga úr umhverfisáhrifum textílvinnslu og förgunar. Markhópar verkefnisins eru hagsmunaaðilar í úrgangsstjórnun, neytendur, hönnuðir, handverksfólk, kennarar og fyrirtæki. Textílmiðstöð Íslands mun koma að gagnasöfnun um textílsorp, söfnun og nýtingu þess hér á landi, ásamt því að skipuleggja kynningarviðburði og vinnustofur í TextílLab.
Upphafsfundur verkefnisins var haldinn á Blönduósi í lok október 2024 og vinnufundur í Borås, Svíþjóð í febrúar 2025. Heimasíðu verkefnisins: www.interreg-npa.eu/projects/threads/home/
Textile Fashion Center Borås Wargön Innovation Vinnufundur á Blönduósi