TC2 Loom Module Width 2
Notendur sem vilja nota prufuvefstólinn okkar (á myndinni til vinstri) þurfa ekki að hafa reynslu eða þjálfun á stafrænum vefstól. Við veitum leiðbeiningar og aðstoð (sjá einnig gjaldskrá), innifalið er 1 m. af uppistöðu.
TC2 Loom Module Width 3
Textíllistamiðstöð býður upp á sérstakan aðgang að TC2 stafrænum vefstól frá Tronrud Engineering (Module Width 3, á myndinni til hægri).
Með TC2 = ,,Thread Controller 2") er hægt að vinna og hanna vefnað sem venjulega krefst Jacquard vefstóls. Mögulegt er að breyta bindimunstri, skaftafjölda og hönnun vefsins nánast um leið og ofið er. Vefbreiddin á TC2 vefstólnum er 107,5 cm, hann er með sex modulum (hafaldasettum) og í uppistöðunni er möguleiki á 1320 þráðum. Sér tölva, Macbook Pro, fylgir vefstólnum. Vefstóllinn er staðsettur í TextílLab. TC2 eins og önnur tæki sem eru þar þarf að bóka sérstaklega; leiguverð fyrir Tc2 (2 / 4 vikur) og umsóknareyðublað má finna hér.
Vinsamlegast athugið að listafólk sem bókar TC2 vefstólinn þarf að hafa reynslu og unnið í TC1 eða TC2 stafrænum vefstól. Textilmiðstöðin býður ekki upp á kennslu í vefnaði, nema það sé sérstaklega auglýst. Listamenn þurfa sjálfir að kunna að setja upp í stólinn og koma með uppistöðu.