Prjónagleði 2021 - Samkeppni

Nú ætlum við að fara af stað með hönnunar- og prjónasamkeppni í tilefni Prjónagleðarinnar sem verður haldin á Blönduósi 11. - 13. júní 2021! 

Verkefnið er vesti og þemað er ,,Áferð í náttúru Íslands". 

Reglur: 

  • Hanna á og prjóna vesti fyrir barn eða fullorðinn
  • Þema keppninnar er áferð í náttúru Íslands og ber að hafa það í huga við hönnunnina
  • Hönnunin skal vera ný, óheimilt er að nota áður útgefin prjónamynstur eða uppskriftir
  • Vestin skulu handprjónuð úr íslenskri ull
  • Sagan á bak við hönnunina skal fylgja með, útprentuð

Upplysingar um skil:

  • Síðasti skiladagur er 1. maí 2021
  • Verkin skal merkja með dulnefni en nafn, heimilisfang og símanúmer skal látið fylgja í lokuðu umslagi merktu dulnefninu
  • Móttakandi vestanna heitir fullum trúnaði við þátttakendur
  • Senda skalfullunnið verk til:

Textílmiðstöð Íslands
bt.: Svanhildur Pálsdóttir
Kvennaskólanum
540 Blönduósi

Dómnefnd velur 3 efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2021, þar sem verðlaun verða afhent. Vestin sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur. 

Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir (svana@textilmidstod.is) 
Hér má lesa viðtal við Svönu í Fréttablaðinu (14.1.2021)