Námskeið í TextílLab & ,,Opið hús"
4. febrúar - 29. apríl
Viðburðir
Textílmiðstöð Íslands býður upp á tveggja tíma námskeið í TextílLab í febrúar, mars og apríl.
Hvert námskeið er sjálfstætt og haldið á eftirfarandi miðvikudögum kl. 16:00 - 18:00:

4. febrúar: Nálaþæfing

11. febrúar: Nálaþæfing

18. febrúar: Stafrænn útsaumur

11 mars: Nálaþæfing

18. mars: Flos

1. apríl: Nálaþæfing

15. apríl: Stafrænn útsaumur

22. apríl: Flos (tufting)
Námskeið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Svo er hægt að bóka ,,opnir miðvikudaga" - alltaf síðasti miðvikudagur í mánuði, kl. 16:00 - 18:00. Þessi opni tími er sérstaklega ætlaður þeim sem eiga erfitt með að komast í Textíllabið á venjulegum opnunartíma. Einnig fyrir vinahópa, vinnustaði, saumaklúbba o.fl.!