Nemendur 2. árs í fatahönnun við Listaháskólann eru í starfsnám hjá okkur 17. - 21. nóvember!
Hópurinn (10 nemendur samtals) kom til okkar á mánudaginn 17. nóvember í fylgd kennara, Rögnu Sigurðardóttur. Þau hafa verið að vinna með sérhæfðan búnað í TextílLabinu undir leiðsögn sérfræðinga Textílmiðstöðvarinnar.
Vinsælust eru Tc2 tölvuvefstólinn, nálarþæfingarvélin, flosbyssurnar og tölvuvædda útsaumsvélin.
Nemendum þykir dvölin lærdómsrík og það er frábært að sjá að LHÍ er ákveðið í að koma árlega til okkar og nýta sér aðstöðuna!
