Hvað segja bændur um ullina?

Nýlega lauk skoðanakönnun á vegum Textílmiðstöðvar Íslands um viðhorf bænda til ullarinnar. 

Ýmis tækifæri liggja í notkun og meðhöndlun á ull, en við vildum vita meira um viðhorf bænda. Hver er áhuginn á úrvinnslu á ullinni? Má bæta ullina og þá hvernig? Hvað finnst bændum um ullarverðið? Fleiri spurningar vöknuðu. Skoðanakönnun var unnin í samstarfi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og sent út sumarið 2020. Þýði könnunarinnar samanstóð af þeim sauðfjárbúum sem skráð eru í Landssamtök sauðfjárbænda, alls 1080 býlum.

Alls bárust svör frá 572 býlum eða 53% sauðfjárbúa. Niðurstöður eru afar áhugaverðar og sýna m.a. að stórt hlutfall svarenda hefur áhuga að fræðast meira um ull, meðferð ullar og einnig hvernig hægt er að auka verðmæti ullarinnar. 

Við þökkum sauðfjárbændum fyrir þátttökuna og hvetjum alla áhugasama um ull og ullarvinnslu að nálgast skýrsluna hér.

Grein um könnunina eftir Jóhanna E. Pálmadóttir mun birtast í Bændablaðinu á næstunni.