VMA í TextílLab

Nemendurnir sex með Ínu kennara og Margréti.
Nemendurnir sex með Ínu kennara og Margréti.

Þann 28. apríl 2023 komu sex nemendur á textíllínu listnáms- og hönnunarbrautar VMA með kennaranum sínum, Borghildi Ínu Sölvadóttur, í heimsókn og fengu að nýta tækjabúnað sem er í boði í TextílLab og kynna sér starfsemina. 

Liður í áfanganum ,,Yfirborðshönnun" var að fara í heimsókn í Textílmiðstöð Íslands og nýta sér tæknina í TextílLab. Nemendur undirbjuggu heimsóknina vel með hönnun og forritunarvinnu. Lykla með þessum skjölum tóku nemendur með sér til Blönduóss og keyrðu síðan út úr velbúnaðinum. Hér má sjá myndir og myndbönd frá heimsókninni í Textílmiðstöðina.

Borghildur Ína segir mikilvægt fyrir nemendur að kynnast allri þeirri tækni sem er til staðar í textíl, í þessum geira, eins og öðrum, sé þróunin hröð. Ína nefnir að þurrþæfingarvélin í Textílmiðstöðinni sé sú eina á landinu sem almenningur hafi aðgang að. Mikilvægt sé fyrir nemendur að vita af þeim möguleika að nýta sér þennan tæknibúnað þegar komi að því að þeir velji sér viðfangsefni fyrir lokaverkefni í náminu á vorönn 2024.

https://www.vma.is/is/skolinn/frettir/heimsokn-i-textilmidstodina-a-blonduosi