Vinnufundur Tracks4Crafts

Vinnufundur Tracks4Crafts-verkefnisins var haldinn í Búkarest í Rúmeníu dagana 6.–9. október 2026. Þar áttum við frábæra daga með samstarfsaðilum verkefnisins.

Á meðan á dvölinni stóð heimsóttum við Semne Cusute Atelier og Þjóðminjasafn rúmenska bóndans (National Museum of the Romanian Peasant), þar sem við fengum innsýn í ríkar textílhefðir og menningararf Rúmeníu. Litríkir útsaumarnir, hefðbundin mynstur og fjölbreytt litaval endurspegla sögu, sjálfsmynd og handverksþekkingu landsins. Við fengum einnig tækifæri til að kynnast sögu Búkarest og menningu borgarinnar.

Skemmtilegt var sjá efnasafnið (Materials Library) sem Politecnico di Milano hefur sett saman úr efniviði og efnissýnum frá öllum tilraunaverkefnum ("pilots") í Tracks4Crafts. Safnið endurspeglar fjölbreyttan efnivið, handverksþekkingu og menningararf sem verkefnið byggir á - í efnasafninu okkar má finna sýni og prufur úr verkefnum eins og Fjólublá og "Material Dialogues". 

Það er alltaf gott að hitta samstarfsfólkið, læra hvert af öðru og styrkja tengslin innan verkefnisins. Við förum heim með nýjar hugmyndir og innblástur til áframhaldandi vinnu við að varðveita, rannsaka og miðla hefðbundinni handverksþekkingu.