Verk Josefin Tingvall á útivegg Kvennaskólans

Picture credit: Josefin Tingvall
Picture credit: Josefin Tingvall

Frá fimmtudegi 24. 10. til sunnudags 27. 10. var sýnt verk Josefin Tingvall á útivegg Kvennaskólans. Um er að ræða myndband sem var varpað á bakhlíð hússins alltaf á milli kl. 17: 30-22:00 og sjást vel frá göngustígnum meðfram Blöndu og gamla bænum.

,,Í myndbandinu sést landslag í stöðugri hreyfingu, eins og í bíltúr. Myndskeiðið, sem ég þróaði á meðan ég dvaldi í listamiðstöðinni, á að veita ró og skapa hugleiðsluástand."

Josefin Tingvall er textíllistakona frá Svíðþjóð. Hún hlaut styrk á vegum Textíllistamiðstöðvarinnar og Nordic Culture Point árið 2019 til að dvelja í listamiðstöðinni í September og Október.