Dagana 3.–5. nóvember 2026 hittust samstarfsaðilar THREADs-verkefnisins í Borås í Svíþjóð.
Á dagskránni voru meðal annars verkefnafundir, málstofur og þátttaka í Borås Textile Days, þar sem fjallað var um nýsköpun og sjálfbærni í textíliðnaði. Einnig var sett upp sýningin „Reimagine Resources“, sem er hluti af THREADs-verkefninu. Þar voru sýnd sýnishorn og verk eftir valda hönnuði - þ.a.m. TextílBarinn frá Íslandi - og gestir gátu séð hvernig hægt er að nálgast textílúrgang á skapandi hátt og gefa efnum nýtt hlutverk.
Sarah og Alissa, umsjónaraðilar TextílLabsins tóku þátt fyrir hönd Textílmiðstöðvarinnar, en þær aðstoðuðu við uppsetningu sýningarinnar og tóku þátt í málstofunni Rethinking Resources og pallborðsumræðum í tengslum við hana. Þar deildu þær reynslu sinni og sjónarmiðum um áskoranir og tækifæri í nýtingu textílefna. Meginspurning málstofunnar var: „Hvernig geta hönnuðir breytt textílúrgangi í ný tækifæri?“ Rætt var um möguleikana sem felast í textílúrgangi og hvernig hönnun og skapandi hugsun geta stuðlað að betri nýtingu efna og auðlinda.
Á fundinum gafst þátttakendum einnig kostur á að fara í leiðsögn um Swedish School of Textiles og kynna sér aðstöðuna, tæknina og rannsóknarstarfið sem þar fer fram.
Kæra þakkir fyrir okkur : )
