Textílmiðstöð auglýsir eftir starfsmanni í 100% starfi í TextílLabi!
Helstu verkefni og ábyrgð í samstarfi við umsjónarmann TextílLabsins:
- Umsjón með rýminu: Daglegur rekstur, viðhald, þrif og umsjón með stafrænum tækjabúnaði með áherslu á leiserskera og þrívíddarprentun. Í umsjón starfsfólks eru jafnframt tæki tengd vefnaði, prjóni, útsaum og þæfingu.
- Leiðbeining og kennsla: Taka á móti einstaklingum, hópum og nemendum, veita tæknilega aðstoð og halda reglulega námskeið á tækin.
- Stuðningur við nýsköpun: Aðstoða frumkvöðla, listafólk og sprotafyrirtæki við útfærslu verkefna og þróun á vörum.
- Samstarf: Þátttaka í innlendum og alþjóðlegum samstarfsverkefnum tengdum Textílmiðstöðinni.
Við leitum að einstaklingi með:
- Brennandi áhuga á textíl, nýsköpun, tækni og umhverfismálum.
- Tæknimenntun eða önnur menntun sem nýtist í stafrænni smiðju.
- Ríka samskiptahæfni og getu til að leiðbeina fjölbreyttum hópum.
Starfið krefst búsetu á svæðinu.
Textílmiðstöðin áskilur sér rétt á að hafna öllum umsóknum. Umsóknarfrestur er til 18. desember.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir, Elsa Arnardóttir, forstöðumaður: elsa@textilmidstod.is