Þann 18.-20. september bjóðum við upp á helgarnámskeið undir leiðsögn starfsfólks Textílmiðstöðvarinnar, Sarah Finkle og Alissu Estivariz, sem byggir á TC2 námskeiðinu sem haldið var í vor.
Námskeiðið er ætlað öllum sem eru með grunnþekkingu á stafrænum vefnaði og hefst föstudaginn 18. september kl. 9:00 í Textíllabinu, Þverbraut 1, 540 Blönduósi.
Kennslutími:
18.09: 9:00–17:00
19.09: 9:00–17:00
20.09: 9:00–15:00
A.m.k. tveir þátttakendur þurfa að skrá sig til að námskeiðið verði haldið. Skráning er opin til 28. ágúst!
Nánari upplýsingar og skráning má finna hér í vefverslun okkar.
Gisting er ekki innifalin en við getum aðstoðað við að útvega hana. Hafðu samband á textillab@textilmidstod.is.