Nemendur frá Concordia-háskólanum í Montréal í Kanada hafa dvalið hjá okkur allan júnímánuð og halda lokasýningu í Hillebrandtshúsi laugardaginn 27. júní.
Sýningin er opin frá kl. 11:00–17:00 og listamannaspjall fyrir almenning fer fram frá kl. 13:00–14:00.
Verið hjartanlega velkomin að skoða sýninguna, hitta listamennina og fræðast um verk þeirra!