Sumarstarfsmaður í TextílLab

Við bjóðum velkomin til okkar Haraldur Holti Lindal, sumarstarfsmaður í TextílLab!
 
Haraldur er rafvirkja-, vélvirkja-, vélstjóra-, og tæknistúdents nemi í FNV, eldsmiður og þrívíddarhönnuður. Hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á tækjum, tólum, tölvum og öllu sem þeim tilheyrir. Áhugi hans á textíl byrjaði þegar hann fór í frumkvöðla áfanga og stofnaði H.Hampur með samnemendum sínum, hrávinnslufyrirtæki sem vinnur þráð úr hampi til textílnota.
 
Haraldur mun vinna með Margréti Katrínu umsjónarmanni TextílLabsins í sumar.