Sumarnámskeið 5. & 6. júní

Textílmiðstöð Íslands býður upp á námskeið í TextílLabinu 5. & 6. júní (hvert námskeið er sjálfstætt!)
 

Flos: Við kynnum fyrir ykkur "tufting", aðferð þar sem notaðar eru flosbyssur. Við útvegum litla ramma (35 × 45 cm) með striga (50 × 50 cm). Á tveimur klukkustundum er hægt að búa til lítið teppi og taka með heim. Við útvegum einnig garnið, en ykkur er velkomið að koma með eigin prjónaafganga. Allir eru velkomnir -  námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komna! 

Nálaþæfinganámskeið: Inniskór úr textílúrgangi

Við kynnum fyrir ykkur þæfingarvélina okkar & kembivél og notum textílúrgang, ull og garnafganga til að búa til mottur, þæfðan dúk eða ullarplötur sem síðan eru nýttar til að búa til inniskó.

 
Skráning er hér í vefverslun (,,nám")! Takmarkað pláss – tryggðu þér sæti ✨