Starfsnám í Textíllistamiðstöðinni

Danskir nemendur PK Professionskole, Josephine, Sofie, Elena og Nanna.
Danskir nemendur PK Professionskole, Josephine, Sofie, Elena og Nanna.
Fjórir danskir nemendur PK Professionskole i Kaupmannahöfn komu til okkar í Textíllistamiðstöðina eftir að þær höfðu staðist öll próf, bæði fyrir og eftir sóttkví í Reykjavík. Þær voru því mjög glaðar að koma norður í baðandi norðurljósadansi að kvöldi 11. janúar.
 
Nemendur eru Josephine Franckaert, Sofie Olsen, Elena Westerhof og Nanna Sørensen. Í starfsnáminu munu þær læra hvernig er að koma af stað stórum útsaumsverkefnum eins og Vatnsdælu reflinum og þær munu kynna sér allar hliðar hans.
 
Einnig er kominn tími til að yfirfæra næstu teikningu sem er 6metrar á refilinn sem þær gera ásamt því að sauma sem ákafast í þrjár vikur á meðan dvölinn stendur. Þeim verður boðið í fræðsluferð um Vatnsdalinn og að Þingeyrum til að sjá slóðir þeirra sem eru að birtast smátt og smátt í reflinum með saumaskapnum.
 
Þetta er í 11. skiptið sem nemendur textílsskólans koma og hefur það verið mjög ánægjulegt fyrir okkur!