Í tengslum við Valgreinadag grunnskólanna hélt Textíl Lab einnig tvær vinnustofur fyrir nemendur á aldrinum 13–16 ára (alls 14 nemendur) þann 9. október. Í hvorri vinnustofu bjuggu nemendur til tauplástra úr endurunnum efnum og ull og saumuðu síðan eigin hönnun í plástrana. Nemendurnir fengu jafnframt kynningu á labinu og tækjum. Hver vinnustofa stóð yfir í um eina klukkustund.