"Material Dialogues": Vinnustofa

Við bjóðum ykkur velkomin á þriggja daga verklega vinnustofu!

Sérfræðingar úr Materials Design for Transition hópnum við Polimi – Politecnico di Milano munu leiða vinnustofuna (á ensku) sem snýst um að læra að vinna með mismunandi efni, svo sem lífplast, plöntur og önnur lífræn efni, og hvernig þau hafa áhrif á sköpunarferlið. Verð: 5000 kr.

Hægt er að skrá sig hér: https://www.textilmidstod.is/en/education/webshop/index/courses/material-dialogues

Dagskrá: 

Dagur 1 – Aðferðafræði og söfnun efnis

10:00–10:45 –Inngangur
10:45–11:00 – Kaffi
11:00–13:00 – "Materials Design" aðferðafræði
13:00–14:00 –Hádegismatur
14:00–16:45 –Við söfnum hráefni, s.s. þurrkaðan þang, börk, fléttur eða plöntur
16:45–17:00 – Kaffi
17:00–18:00 – Undirbúningur fyrir tilraunir 

Dagur 2 – Tilraunir

10:00–10:45 –Kynning: Aðferðafræði, uppskriftir
10:45–11:00 – Kaffi
11:00–13:00 – Tilraunir
13:00–14:00 – Hádegismatur
14:00–15:45 – Tilraunir 
15:45–16:00 – Kaffi 
16:00–17:00 – Umræður 

Dagur 3 – Umræður og kynningar

10:00–11:00 – Kynning: "Storytelling and communicating material research"
10:45–11:00 – Kaffi
11:00–13:00 – Undirbúa sýningu
13:00–14:00 – Hádegismatur
14:00–16:00 –Umræður 

Fleiri upplýsingar:
Chiara Alissa Estivariz Lopez & Sarah Finkle
textillab@textilmidstod.is