Þátttakendur og leiðbeinendur á námskeiðinu sem haldin var 3.-5. mars 2026.
Í byrjun mars var haldin þriggja daga vinnustofa hjá okkur undir leiðsögn sérfræðinga úr ,,Materials Design for Transition" hópnum við Politecnico di Milano á Ítalíu, Dr. Elena Albergati og Dr. Sofia Soledad Duarte Poblete.
Vinnustofan „Material Dialogues“ snýst um að læra að vinna með umhverfisvæn efni úr nærumhverfi (eins og þang, þörunga og plöntur) sem hægt er að nota í stað plasts t.d. í tengslum við vöru- og fatahönnun. Þátttakendur á námskeiðinu voru 10 samtals, m.a. frumkvöðlar og nemendur frá Listaháskólanum og Myndlistaskólanum í Reykjavík.
Við þökkum Sofiu og Elenu kærlega fyrir komuna og samstarfið, þetta var bæði lærdómsrík og skemmtileg!
Photo credits: Elena Albergati