Þann 22. september 2026 tókum við á móti nemendum á fyrsta og öðru ári í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands (LHÍ), 22 samtals, ásamt kennurum þeirra! Nemendurnir fengu að kynnast aðstöðunni okkar, þar á meðal TextilLab, skoða bæði nýjar vélar og vefstóla og kynna sér nokkur þeirra verkfæra og efna sem er unnið með hér.
Við tökum árlega á móti nemendum LHÍ og sumir þeirra snúa síðar aftur til að vinna að lokaverkefnum sínum. Við erum ánægð með að styðja við og efla þessi áframhaldandi tengsl milli LHÍ og Textílmiðstöðvarinnar.
Í heimsókninni kynntum við einnig nokkur af þeim verkefnum sem við erum að vinna að, s.s.
Tracks4Crafts,
THREADs - Interreg NPA ásamt Ós listamiðstöð. Frábært tækifæri til að skiptast á hugmyndum og gefa nemendunum nánari innsýn í starfsemi og það sem er í gangi hjá okkur!