Við erum svo ánægð með samstarfið við Listaháskóla Íslands, helstu menntastofnun landsins á sviði lista, hönnunar og skapandi greina!
Á hverju ári koma nemendur og kennarar norður á Blönduós til að vinna og læra m.a. í TextílLab og veflofti Textílmiðstöðvarinnar. Nú eru það 12 nemendur á öðru ári í fatahönnun sem dvelja hér í viku (16.-20. nóvember) og kynna sér meðal annars lífrænan textíl (biomaterials), vefnað, stafræna tækni undir leiðsögn kennara og sérfræðinga okkar.
Hjá Textílmiðstöðinni er einstök aðstaða til að rannsaka, þróa og vinna með textíl jafnt hefbundnar sem og nýjar aðferðir.
Það kemur ef til vill einhverjum á óvart að nemendur frá Reykjavík eigi erindi á Blönduós ... og þar sé tækifæri sem ekki er annars staðar á landinu, og þó víðar sé leitað. En þannig er það nú bara!