Iceland Field School 2026

Það var okkur mikil ánægja að taka á móti "Iceland Field School" í Textílmiðstöðinni í fjórða sinn í júní 2026!

Námskeiðið, sem dr. Kathleen Vaughan við Concordia-háskóla í Montréal í Kanada hefur þróað, er þverfaglegt háskólanámskeið þar sem nemendur læra að vefa, lita og spinna ull hjá okkur; þau kynnast einnig TextílLabinu og tækjum sem þar eru í boði ásamt því að vinna eigin verkefnum á vegum skólans t.d. á sviði menningarsögu og ferðamála. Skemmtilegt er að segja frá að Kathleen fékk hugmyndina eftir að hafa dvalið hjá okkur sem listamaður árið 2016.

Lokasýning og listamannaspjallið „Tog & Þel“ fóru fram á Rabarbarahátíð þann 27. júní 2026 í Hillebrandtshúsi á Blönduósi.

Við þökkum nemendum og kennurum kærlega fyrir komuna!