Prjónasamkeppni Prjónagleðinnar 2022

Verkefnið er lambhúshetta og þemað er “Huldufólk samtímans”

Reglur:

  • Hanna á og prjóna lambhúshettu á fullorðinn.  

  • Þema keppninnar er huldufólk samtímans og ber að hafa það í huga við hönnunina.  

  • Hönnunin skal vera ný, óheimilt er að nota áður útgefin prjónamynstur eða uppskriftir. 

  • Lambhúshetturnar skulu handprjónaðar úr íslenskri ull. 

  • Sagan á bak við hönnunina skal fylgja með, tölvuútprentuð. 

Upplýsingar um skil:

Verkin skal merkja með dulnefni en nafn, heimilisfang og símanúmer skal látið fylgja í lokuðu umslagi merktu dulnefninu. 

Senda skal fullunnið verk til: 

Textílmiðstöð Íslands 

bt: Svanhildar Pálsdóttur 

Kvennaskólanum 

540 Blönduósi 

Móttakandi verkanna heitir fullum trúnaði við  þátttakendur. Síðasti skiladagur er 1. maí 2022! Dómnefnd velur 3 efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2022, þar sem verðlaun verða afhent. Ístex, Tundra, Vatnsnesyarn og Rúnalist gefa glæsileg verðlaun. Verkin sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur. Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir (svana@textilmidstod.is) 

Eftirtalin fyrirtæki styrkja keppnina: