,,Heldurðu þræði" - nýsköpunarnámskeið

Mynd: Brynjar Þór Vigfússon
Mynd: Brynjar Þór Vigfússon
Háskóli Íslands, í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands býður í haust upp á nýsköpunarnámskeið sem tengist textílvinnslu hér á landi.
 
Námskeiðið nefnist „Heldurðu þræði“ og er hugsað fyrir þau sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur með áherslu á textíl eða eru í atvinnurekstri og vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðið er haldið í tengslum við evrópska rannsókna- og þróunarverkefnið CENTRINNO sem starfsfólk Háskólans og Textílmiðstöðvar Íslands taka þátt í.
 
Námskeiðið er endurgjaldslaust.
 
Þátttakendur fá margháttaðan stuðning og fræðslu á námskeiðinu, m.a. við að búa til heildstæða viðskiptaáætlun í kringum hugmyndir sínar. Þar verður einnig farið yfir stefnumótun, stjórnun og starfsmannamál, markaðssetningu og hagnýtingu samfélagsmiðla til að koma vörum sínum á framfæri en jafnframt er boðið upp á fræðslu um hringrásarhagkerfið, jafnréttisáherslur og umhverfismál.
 
Námskeiðið hefst 20. september og stendur í níu vikur. Kennt verður í fjarnámi og einni staðlotu. Kynningarfundur fyrir námskeiðið verður miðvikudaginn 12. september kl. 12-12.30 og verður honum streymt á netinu. Skráning hefst föstudaginn 26. ágúst og hægt er að skrá sig hér:
 
Nánari upplýsingar um námskeiðið veitir Hulda Birna Baldursdóttir, netfang: centrinno@hi.is, hbkb@hi.is