Heimsókn frá Listaháskóla Eistlands

Það var gaman að taka á móti Kadi Kibberman og samstarfsfólki hennar frá textíldeild Listaháskóla Eistlands í Textílmiðstöðinni föstudaginn 18. september. Í textíldeildinni mætast textílhönnun, list og rannsóknir, með áherslu á ný efni, tækni og ólíkar leiðir til að vinna með textíl.

Gestirnir fengu kynningu á aðstöðu Textílmiðstöðvarinnar og heimsóttu einnig Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.

Þess má einnig geta að fyrir sex árum tókum við á móti Kärt Ojavee sem listamanni og fræðimanni í residensu hjá okkur. Kärt er nú prófessor í textílhönnun við Listaháskóla Eistlands og því sérstaklega skemmtilegt að fá samstarfsfólk hennar úr deildinni í heimsókn til Blönduós.

Takk kærlega fyrir komuna :)