Framúrskarandi verkefni

Ós Textíllistamiðstöð hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi verkefni árið 2022 á sviði menningar fyrir rekstur á miðstöð fyrir textíllistafólk.

Rekstur Óss textílmiðstöðvarinnar er metnaðarfull og hefur vakið mikla athygli og er þekkt meðal textílfólks víða um heim. Ós hefur verið starfrækt í Kvennaskólanum í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands síðan 2013 og er opin allt árið um kring. Þátttakendur eru á fjórða hundrað og dvelja þar minnst mánuð í senn. Ós er ætluð listafólki, fræðafólki og hönnuðum sem vinna með textíl í víðu samhengi, allt frá hefðbundnu handverki, rannsóknum, hönnun hagnýtra hluta og sköpun listaverka til stafræns textíls.  

Boðið er upp á gisti- og vinnuaðstöðu fyrir allt að 13 einstaklinga og gefst þátttakendum tækifæri á að nýta aðstöðuna á staðnum s.s. sameiginleg stúdíórými, vefnaðarloft, litunarstúdió og gallerí. Í hverjum mánuði er boðið upp á fyrirlestur um íslenskan textíl, ullarframleiðslu og stutt námskeið í tóvinnu. 

Einnig hafa listamenn eins og aðrir aðgengi að TextílLabi, stafrænni smiðju á vegum Textílmiðstöðvarinnar sem var opnuð í maí 2021. Síðan hefur aðsókn aukist jafnt og þétt og er Ós með mikla sérstöðu hvað varðar listamiðstöðvar í heiminum vegna þessa. 

Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV og Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir, atvinnuráðgjafi á sviði nýsköpunar veittu viðurkenningu fyrir hönd stjórnar þann 4. apríl 2023. Elsa Arnardóttir forstöðumaður Textílmiðstöðvar Íslands tók við viðurkenningu fyrir hönd Ós.