Frá Minneapolis til Íslands

Í dag - 8. maí 2026 - tökum við á móti hópi frá Textile Center: National Center for Fiber Arts á vegum Travel Beyond í fjórða sinn! Hópar frá Minneapolis heimsóttu okkur einnig árin 2023, 2024 og 2025.

Í Textílmiðstöðinni á Blönduósi fengu 18 þátttakendur kynningu á aðstöðunni okkar, þar á meðal gestavinnustofu (residency) og TextileLab, kynning á íslenskri ull og útsaum auk prjóna- og útsaumskennslu sem handverkskennarar, Jóhanna og Henný Rósa, leiddu. Þrátt fyrir að nýsköpun í textíl og hringrásarhugsun séu megináherslur Textílmiðstöðvarinnar í dag, er hefðbundin handverksþekking áfram grunnur að starfi okkar.

Á meðan á heimsókn þeirra á Íslandi stendur mun hópurinn einnig heimsækja fleiri áhugaverða textíltengda staði, þar á meðal Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi, Ístex ullarþvottastöð og sauðfjárbýli.