Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, heimsóttu Blönduós laugardaginn 7. nóvember 2026 í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins og afhjúpun minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, sem var brautryðjandi í baráttunni fyrir réttindum kvenna.
Í heimsókn sinni litu forsetahjónin einnig við í Kvennaskólanum og hjá okkur í Textílmiðstöð Íslands. Þar kynntu þau sér starfsemina, spjölluðu við listamenn í Ós Listamiðstöðinni og skoðuðu TextílLab. Í heimsókninni gafst gott tækifæri til að ræða nýsköpun, þróun og þau fjölmörgu tækifæri sem felast í textíl.
Við þökkum forsetahjónunum kærlega fyrir komuna og ánægjulega heimsókn!
