Nemendur Myndlistaskólans í Labinu

Dagana 26.–31. október tókum við á móti sjö nemendum frá Myndlistaskólanum!

Í vikunni fengu nemendur tækifæri til að kanna fjölbreytta möguleika textílsins og vinna með sérhæfðan búnað TextílLabsins undir leiðsögn sérfræðinga Textílmiðstöðvarinnar. Þau heimsóttu einnig Heimilisiðnaðarsafnið. 

Í labinu kynntust þau meðal annars Tc2 vefstólnum, nálarþæfingarvélinni, flosbyssunum og útsaumsvélinni. Allt tæki sem bjóða upp á ólíka nálgun á textíl og opna á alls konar möguleika.

Það er sérstaklega ánægjulegt að fá nemendur með ólíkan listrænan bakgrunn í heimsókn og sjá hvernig þau nálgast tæknina, gera tilraunir og þróa eigin hugmyndir. Vonandi fara þau héðan með nýja þekkingu, innblástur og nokkrar hugmyndir sem bíða þess að verða að veruleika!

Takk fyrir komuna og ánægjulegt samstarf!