Shoplifter - Útilistaverk í Hrútey

Shoplifter - útilistaverk í Hrútey.
Shoplifter - útilistaverk í Hrútey.
Þann 3. júlí var opnuð myndlistarsýningin Boðflenna í Hrútey og verður hún opin almenningi til 28. ágúst. Um er að ræða útilistaverk eftir listakonuna Hrafnhildi Arnardóttir eða Shoplifter, eins og hún er þekkt. Í verkinu stillir Shoplifter náttúruperlunni Hrútey og gervináttúruverkum sínum upp sem hliðstæðum sem einnig má skoða sem andstæður, samstæður eða gagnstæðar spegilmyndir.
 

Aðalhráefni Hrafnhildar er nælonhár, plast og annað gerviefni, sem hún vinnur með ýmiskonar hefðbundinni textíltækni s.s. flosi, rýja, þæfingu, hnútum, fléttum og saumaskap en efnið er líka í sumum tilvikum hitað, brennt, brætt, litað eða málað. Þegar ákjósanlegri þykkt og áferð hefur verið náð býr hún til voðir eða mottur, dúska, kaðla, bönd og annað sem hún nýtir til að skapa hið endanlega listaverk. Þeim efnivið mun hún umbreyta í þúfur, plöntur, skófir, blóm, runna, tré, steina, vörður, og kletta.

Hrafnhildur er í hópi fremstu samtímalistamanna þjóðarinnar og var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2019 en innsetning hennar, Chromo Sapiens vakti mikla athygli og var talin meðal þess sem hæst bar á sýningunni. 

Samstarfsaðilar verkefnisins eru Blönduósbær, Textílmiðstöð Íslands og Íslandsstofa. Verkefnið hefur hlotið styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra, Myndstefi og Myndlistarsjóði. Sýningarstjórar eru Áslaug Thorlacius og Finnur Arnar: http://akleifum.is/

 

http://shoplifterart.com