Prjónuð póstkort - netnámskeið

Við hitum upp fyrir Prjónagleðina 2021 með því að bjóða upp á spennandi prjónanámskeið á netinu: prjónuð póstkort með Deborah Gray!

Námskeiðið skiptist í 3 hluta. Í fyrsta hlutanum er farið í gengum hönnunarferli póstkortsins og í öðrum hluta er farið í prjónatæknina sem þarf til. Í þriðja hluta námskeiðsins sýna þátttakendur og segja frá sínum póstkortum og geta leitað ráða ef á þarf að halda.

Deborah Gray hefur prjónast á við Sue vinkonu sína með þessum hætti í 2 ár, innblásin af #knittedcorrespondence á Instagram og KNITSONIK bókinni Stranded Colorwork Sourcebook eftir Felicity Ford. Þær stöllur prjónast á um hversdagslega hluti, atburði og upplifanir. 

Námskeiðið verður á ensku. Listi yfir nauðsynleg efni og áhöld verður sendur út áður en námskeiðið hefst. Upptökur af námskeiðinu verða aðgengilegar fyrir skráða þátttakendur. Þátttakendur verða að hafa grunnkunnáttu í prjónaskap.

Hvenær: 18. & 25. febrúar & 4. mars, kl: 19.30 – 21.30
Kennari: Deborah Gray (hún kennir á ensku!)  
Verð: 9000 kr - hægt er að kaupa miða hér