Opin vinnustofa: Prjónavélar

Á miðvikudaginn 25. mars höldum við opna vinnustofu frá kl. 15 - 19 fyrir alla þá sem áhuga hafa á prjónavélum!

Sérfræðingar sem dvelja hjá okkur nú í mars, Andy og Madison, skoða prjónavélina ykkar og/eða sýna ykkur hvernig hægt er að nota vélarnar okkar, sem hafa nýlega verið hreinsaðar og lagfærðar.

Andy Valentine er frá Walla Walla í Washington og hefur unnið við prjónavélar síðan 2013. Síðan þá hefur hún safnað og gert upp yfir 20 gömlum og klassískum prjónavélum. Andy hefur sérstaklega mikla reynslu af Brother, Silver Reed og Passap V prjónavélum.

Madison Berg er textíllistamaður og hönnuður frá New York sem m.a. kennir vélprjón, gerir við og selur prjónavélar.

Endilega látið okkur vita fyrir 23. mars ef þið viljið koma með því að senda tölvupóst: textillab@textilmidstod.is