Hönnunar- og prjónasamkeppni

Nú ætlum við að fara af stað með hönnunar- og prjónasamkeppni í tilefni Prjónagleðarinnar sem verður haldin á Blönduósi 11. - 13. júní 2021! 

Verkefnið er vesti og þemað er ,,Áferð í náttúru Íslands". 

Reglur: 

- Hanna á og prjóna vesti fyrir barn eða fullorðinn
- Þema keppninnar er áferð í náttúru Íslands og ber að hafa það í huga við hönnunnina
- Hönnunin skal vera ný, óheimilt er að nota áður útgefin prjónamynstur eða uppskriftir
- Vestin skulu handprjónuð úr íslenskri ull
- Sagan á bak við hönnunina skal fylgja með, útprentuð

Upplysingar um skil:

Verkin skal merkja með dulnefni en nafn, heimilisfang og símanúmer skal látið fylgja í lokuðu umslagi merktu dulnefninu. Móttakandi vestanna heitir fullum trúnaði við þátttakendur

Senda skalfullunnið verk til:

Textílmiðstöð Íslands
bt.: Svanhildur Pálsdóttir
Kvennaskólanum
540 Blönduósi

Síðasti skiladagur er 1. maí 2021