Inniskór úr textílúrgangi
📅 Föstudagur, 05.06. kl. 10:00–12:00
Við kynnum fyrir ykkur þæfingarvélina okkar & kembivél og notum textílúrgang, ull og garnafganga til að búa til mottur, þæfðan dúk eða ullarplötur sem síðan eru nýttar til að búa til inniskó.
Innifalið:• Efni: ull, grunnefni, textílúrgang, garn• Snið fyrir inniskó og aðgang að saumavél
Takið með ykkur prjónaafganga og búið til ykkar eigin inniskó sem þið getið tekið með heim :)