Kvennaskólinn

Textílmiðstöð Íslands starfar í Kvennaskólanum á Blönduósi, þar sem hefur verið rekin skólastarfsemi í 66 ár. Kvennaskólinn hóf starfsemi á Blönduósi árið 1901, þegar nýtt skólahús var tekið í notkun, en þar áður hafði skólinn verið starfræktur að Ytri-Ey frá árinu 1879. Eldur lagði skólahúsið í rúst árið 1911, og var núverandi skólabygging reist árið 1912. Starfsemi Kvennaskóla Húnvetninga – síðar Húsmæðraskólans á Blönduósi – lauk árið 1978.

Í dag er Kvennaskólinn á Blönduósi sannkallað þekkingarsetur. Þar má, auk skrifstofa Textílmiðstöðvar Íslands, finna aðstöðu fyrir háskólanám og fullorðinsfræðslu, sem og Ós textíllistamiðstöðina, ásamt skrifstofum SSNV og Markaðsstofu Norðurlands. Skólabyggingin er friðuð og er í eigu íslenska ríkisins (75%) og Húnabyggðar.

 
   Skólaspjald 1928
IFrame