Um Textíl Lab

Hvað er Textíl Lab?
TextílLab er rými á vegum Textílmiðstöðvarinnar sem er útbúin stafrænum tækjum sem tengjast textílvinnslu: vefnaði, prjóni, þæfingu og útsaumi. TextílLab býður upp á frábæra aðstöðu til nýsköpunar og þróunar textíls í tengslum við sjálfbærni og hringrásarhagkerfi. Lögð er áherslu á nýtingu innlendra hráefna. 

Fyrir hvern? 
TextílLab er opið öllum. Ekki þarf sérstaka reynslu eða fullkláraða verkefnahugmynd til að nýta sér aðstöðina. TextílLab hentar því handavinnufólki, völundur, fræðimönnum, listamönnum, nemendum, eða bara öllum sem hafa áhuga á að þróa verkefni eða vöru, gera tilraunir með efni. TextílLab er fyrst og fremst hugsað sem rými fyrir þróun hugmynda eða frumgerða. Ekki er hægt að vera með fjöldaframleiðslu. Greiða þarf sérstaklega fyrir efni. 

Um tækin
TextílLab er útbúin stafrænum tækjum sem tengjast textílvinnslu, eins og vefnaði, prjóni, þæfingu og útsaumi.  Myndir má finna hér:  Gallerí 📸 

Hvernig nýti ég mér aðstöðuna?
Hægt er að senda fyrirspurn á umsjónarmaður TextílLabs: 📧 textillab@textilmidstod.is 

Umsjónarmaðurinn sér einnig um kennslu á tækjunum og aðstoð við útfærslu verkefna. Ef um hópheimsókn er að ræða endilega látið vita fyrirfram. 

     

TextílLab var formlega opnuð á Þverbraut 1 á Blönduósi þann 21. maí 2021. Það er hluti af stóru Evrópuverkefni CENTRINNO sem Textílmiðstöð Íslands tók þátt í 2020 - 2024 og einnig fjármagnað með styrk úr Innviðasjóði, Lóu-nýsköpunarstyrkur á landsbyggðinni og Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.