- Um okkur
- Textílmiðstöð
- Ós Textíllistamiðstöð
- TextílLab
- Fabricademy
- Prjónagleði
- Vefverslun
Staðsetning námskeiða verður birt í vikunni fyrir hátíðina, einnig mun stofutöflur hanga uppi á Garntorginu og í Kvennaskólanum.
Garntorgið opnar kl: 16 föstudaginn 7. júní og á bás Prjónagleðinnar verður hægt að kaupa prjónaarmbönd og aðgang að þeim námskeiðum sem ekki verða uppseld.
Hvað þýðir það að vera skapandi manneskja?
Er það sama og að vera með rauða alpahúfu, hjólandi meðfram bökkum Signu með rauðvín og baguette í körfu? Eða er sú birtingarmynd einungis staðalmynd og klisja sem við sjáum á samfélagsmiðlum?
Sköpun, og að vera skapandi, er fjölbreytt hreyfiafl sem er hvorki staðlað né skilyrt. Að skapa krefst hvorki mikillar færni né mælanlegrar lokaafurðar. Getum við ekki bara leyft okkur að skapa ánægjunnar vegna og þarf allt að vera fallegt?
Á námskeiðinu fer Sigrún hannyrðapönkari í saumana á því við hvað það þýðir að vera skapandi í handavinnu og prjónaskap og saman skoðum við hvernig hægt er að virkja sköpunarkraftinn í okkar eigin hönnunar- og hugmyndavinnu.
Saman gerum við nokkrar léttar æfingar sem eru til þess fallnar að hreyfa við hugmyndum okkar um eigin sköpunarkraft og sleppum fram af okkur beislinu í skapandi flæði með tónlist og skynjunaræfingum. Þannig æfum við okkur að fara örlítið út fyrir þægindarammann án þess að pressa á okkur að performa fyrir framan aðra. Einnig skoðum við nokkrar aðferðir til að þróa okkar eigin leiðir í hönnunar- og hugmyndavinnu.
Síðast en ekki síst fá námskeiðsgestir að spreyta sig á að umbreyta gömlu prjónalesi, textíl og útsaumi eftir eigin hugmyndum. Allt hráefni er á staðnum, öllum að kostnaðarlausu, en gestir eru einnig hvattir til að koma með eigin handavinnu.
Engrar sérstakrar kunnáttu er krafist, allt sem þarf er áhugi og forvitnii
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 9 - 12
Kennari: Sigrún Hannyrðapönkari
Taka með: Innifalið í námskeiðinu er taupoki úr endurunnum textíl, skissubók fyrir hugmyndavinnu og útsaumspakkning með endurnýttum textíl sem hægt er að nýta í hverskyns skapandi handavinnu.
Tungumál: Íslenska
Á námskeiðinu verður kennd grunntækni hekls og að lesa hekl uppskriftir. Heklaðar verða hefðbundnar ferkantaðar dúllur og veittur innblástur hvernig má setja þær saman á skemmtilegan hátt í hin ýmsu verkefni! T.d. hið klassíska teppi, tösku, peysu eða annað sem hugurinn girnist.
Hekl er nefninlega frábær aðferð að kunna og má blanda þeirri tækni fallega með prjóninu, t.d. að hekla kanta á barnateppi eða húfur.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 9 - 12
Kennari: Tinna Laufdal
Taka með:
Heklunál nr. 4,5 og 2 dokkur viðeigandi garn í sitthvorum litnum.
Skæri og saumnál
Tungumál: Íslenska
Verkefnataska er einn helsti fylgihlutur prjónarans og ekki verra ef hún er heimasaumuð úr endurnýttum textíl.
Á námskeiðinu sauma þátttakendur verkefnatösku, með eða án handfangs. Þátttakendur fá innblástur um hvernig hægt er að endurnýta t.d. gamla dúka, bútasaum, útsaumuð stykki eða klukkustrengi og gefa gömlum textíl nýtt líf í formi verkefnatösku. Hér er t.d. hægt að nýta útsauminn hennar ömmu og taka með út á prjónalífið.
Hvenær: Sunnudagur 9. júní kl: 9 - 12
Kennari: Tinna Laufdal
Taka með:
Efni í töskuna: magn: 1,20 x 1 m t.d. efnisafganga og/eða útsaumuð stykki og 2,30m langa snúru/band til að loka töskunni.
Saumavél
Skæri, títuprjónar, málband og tvinna
Tungumál: Íslenska
Á námskeiðinu læra þátttakendur að prjóna hina vinsælu Shrug peysu, sem er síðerma peysa með stuttum bol. Shrug peysan hentar bæði þeim sem eru byrjendur í prjóni og þeim sem hafa prjónað í mörg ár og er skemmtilegt og skapandi verkefni fyrir alla, þar sem hugmyndaflugið fær að ráða.
Þátttakendur fá tækifæri til að hanna eigin útfræslu og fá innblástur hvernig nota má mismundandi prjónaaðferðir og garn, þ.e. grófleika, garntegundir og aðra skemmtilega þræði til að fá mismunandi útfærslur. Þátttakendur fá grunnmunstur sem þeir geta aðlagað að eigin óskum. Peysan er prjónuð á grófa prjóna og er fljótprjónuð.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 13.45 - 16.45
Kennari: Tinna Laufdal
Taka með:
7 mm hringprjóna, 60 eða 80 cm langa. Garn fyrir 5 mm prjóna (magn: 200 gr.) Hvatt er til þess að koma einnig með afganga og mismunandi grófleika af garni.
Nauðsynleg kunnátta: Grunnþekking á prjóni.
Tungumál: Íslenska
Á námskeiðinu gera þátttakendur prufur í mismunandi hekli og aðferðum. Einnig verður farið yfir hvernig á að auka út og fækka lykkjum. Hver og einn vinnur á sínum hraða, þeir sem vilja fara rólega gera það og þeir þátttakendur sem eru fljótari geta unnið á sínum hraða. Einnig verður kennt að lesa uppskriftir.
Innifalið í verði er garn til að nota á staðnum og rússnesk heklunál sem þátttakendur mega taka með sér heim.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 9 - 12
Kennari: Kristjana Kona
Taka með: Innifalið í verði er garn til að nota á staðnum og rússnesk heklunál sem þátttakendur mega taka með sér heim.
Tungumál: Íslenska
Sýnt verður hvernig hægt er að skapa fallega felds áferð með t.d. afgangsgarni og hvernig hægt er að vinna með garnið svo það komi sem fallegast út. Þátttakendur prófa sig áfram með ýmsum litum og mismunandi tegundum af garni. Sýnt verður hvernig er hægt sé að sækja sér innblástur til að breyta prjóni í listaverk. Þátttakendur geta einnig tekið með á námskeiðið Furry neckwarmer eða Furry pillow sem hvoru tveggja eru uppskriftir frá Thelmu. Einnig er hægt að koma með eigin prjónaflík sem hægt er að hekla afgangana á.
Hvenær: Sunnudagur 9. júní kl: 9 - 12
Kennari: Thelma Steinmann
Taka með: Prjónaða flík/hlut/stykki sem hægt er að hekla feldinn á. Garn, t.d. afgangsgarn, því meira því betra, heklunál, góð skæri, saumnál
Tungumál: Íslenska
„Gansey“ – „Genser“ – „Vissers Truien“ – „Duggarapeysur“
Á námskeiðinu verður stuttlega farið í sagnfræði flíkurinnar, hvernig þær voru prjónaðar og hvernig farið var að því án uppskrifta. Þátttakendur setja svo saman sína eigin nútíma peysur sem byggðar eru á þessum hefðbundnu aðferðum og munstrum. Unnið er með því garni sem hverju og einu okkar hugnast þar sem grófleiki og prjónfesta er persónubundin en ekki fyrirskipuð. Farið yfir máltöku og útreikninga.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 13.45 - 16.45
Kennari: Sigurlaug Hauksdóttir
Taka með: Garn og prjóna í viðeigandi stærð en námskeiðinu fylgja útreikningsblöð og sýnishorn af algengum munstrum, auk tilbúinnar uppskriftar.
Tungumál: Íslenska
Á þessu prjóntækninámskeiði mun þátttakendur læra að prjóna fallegt hálsmál, vinna með stuttar umferðir, taka upp lykkjur á fallegan hátt og ýmiss góð tækniatriði þegar kemur að prjónuðu hálsmáli.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 13.45 - 16.45
Kennari: Helga Jóna Þórunnardóttir
Taka með:
-Ullargarn í tveimur litum sem passar fyrir prjónastærð 3,5 - 4,5. Ávallt gott að hafa það í ljósari kantinum.
-Hringprjón sem passa fyrir garnið og líka hálfu til einu númeri minni.
-Prjónasnúru, stoppunál, skæri.
Nauðsynleg kunnátta: Grunnþekking á prjóni.
Tungumál: Námskeiðsgögn eru á dönsku en kennt á íslensku og því upplagt að taka blýant með og skerpa á dönsku prjónamáli.
Þátttakendur munu læra að prjóna mismunandi vefprjónsmunstur, en það er einföld aðferð við að prjóna munstur sem líta út fyrir að vera mun flóknari.
Vefprjón hentar í hinar ýmsu flíkur, töskur, púða og hvað sem er.
Hvenær: Sunnudagur 9. júní kl: 9 - 12
Kennari: Helga Jóna Þórunnardóttir
Taka með:
-Ullargarn í amk þremur mismunandi litum sem passar fyrir prjónastærð 3 - 4.
-Prjóna í mismunandi stærðum, gjarnan sem passa garninu og einnig aðeins stærri.
-Prjónasnúru, stoppunál, skæri.
Tungumál: Námskeiðsgögn eru á dönsku en kennt á íslensku og því upplagt að taka blýant með og skerpa á dönsku prjónamáli.
Þátttakendur munu læra spennandi prjóntækni, vinna með mismunandi garn og liti til að skapa fallega áferð í prjóni. Þessa kunnáttu er hægt að nýta í hin ýmsu prjónaverkefni, hvort sem það er í flíkur, púða, töskur eða eitthvað enn annað.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 9 - 12
Kennari: Helga Jóna Þórunnardóttir
Taka með:
-Garnafganga í mismunandi litum og gerðum. Gjarnan svolítið Silkmohair og ullargarn. Helga Jóna verður með svolítið garn meðferðis en etv geta þátttakendur skipst svolítið á garni ef þarf, til að gera úrvalið enn breiðara af litum og gerðum.
-Prjóna í mismunandi stærðum.
-Prjónasnúru, stoppunál, skæri.
Tungumál: Námskeiðsgögn eru á dönsku en kennt verður á íslensku og því upplagt að taka blýant með og skerpa á dönsku prjónamáli.
Langar þig að skreyta fallega peysu með útsaumi eða áttu prjónaflík sem þarf að flikka aðeins upp á?
Útsaumur býður upp á endalausa möguleika til skreytinga og viðgerða á prjónlesi og er tilvalinn til að hressa upp á litlausa flík, fela blett eða laga göt.
Þátttakendur læra ýmis útsaumsspor og hver og einn velur hvaða spor henta hverju verkefni.
Á námskeiðinu verða kennd a.m.k. 5 gerðir af útsaumssporum. Notaður verður pappír sem hverfur í vatni við útsauminn. Þátttakendur læra að nýta innblástur til að sauma út í prjónles, finna út hvernig endanleg útkoma verksins verður og þar með skapa sitt eigið listaverk.
Reglulega verður stoppað og gerðar teygjuæfingar m.a. fyrir hendur.
Efniskostnaður er innifalinn í námskeiðsgjaldinu og fá þátttakendur: ullarefni sem æfingarstykki fyrir útsaumsspor, hverfiefni/pappír - til að teikna mynstur á og sauma eftir og eysist upp í vatni og garn til að sauma með.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 9 - 12
Kennari: Gunnlaug Hannesdóttir
Taka með: Það er um að gera að taka með gamlar prjónfestuprufur eða annað prjónles sem ykkur langar til að prófa að sauma í.
Tungumál: Íslenska
Að prjóna tvílitt mynstur en prjóna einn lit í einu.
Þátttakendur læra að prjóna nokkrar útgáfur af þessari bráðskemmtilegu og einföldu aðferð. Unnið verður bæði með mjög einföld mynstur og flóknari mynstur. Prjónað verður garðarprjón og slétt prjón í hring með mósaikprjóni. Prjónaðar verða nokkrar prufur til að sjá sem allra flestar útfærslur. Það er gaman að prjóna mosaik prjón með annan litinn marglitann.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 9 - 12
Kennari: Anna Margrét Valgeirsdóttir
Taka með: Að minnsta kosti 2 liti, einn dökkan og annan ljósan og sokkaprjóna sem passa við garnið.
Nauðsynleg kunnátta: Þessi aðferð er eitthvað sem allir geta lært og tileinkað sér.
Tungumál: Íslenska
Tufting æðið er í hámarki um þessar mundir og við bjóðum upp á námskeið þar sem kennd verður tæknin við að nota tuftbyssu til þess að búa til mjúkt veggverk.
Þátttakendum gefst tækifæri að nota eigin teikningu sem fyrirmynd að verkinu sem þeir tufta svo með tuftbyssu. Litríkt garn í boði.
Allt efni, kennsla í tækni og aðstoð við sköpunarferli er innifalið í verðinu.
Krafa er gerð um að þátttakendur geti haldið á og beitt tuftbyssu.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 9.00 - 12.00
Kennari: Frá Textílmiðstöð Íslands
Hafa með: Þátttakendum er velkomið að koma með eigið garn til þess að vinna með aukalega.
Tungumál: Íslenska
Tufting æðið er í hámarki um þessar mundir og við bjóðum upp á námskeið þar sem kennd verður tæknin við að nota tuftbyssu til þess að búa til mjúkt veggverk.
Þátttakendum gefst tækifæri að nota eigin teikningu sem fyrirmynd að verkinu sem þeir tufta svo með tuftbyssu. Litríkt garn í boði.
Allt efni, kennsla í tækni og aðstoð við sköpunarferli er innifalið í verðinu.
Krafa er gerð um að þátttakendur geti haldið á og beitt tuftbyssu.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 13.45 - 16.45
Kennari: Frá Textílmiðstöð Íslands
Hafa með: Þátttakendum er velkomið að koma með eigið garn til þess að vinna með aukalega.
Tungumál: Íslenska
Á námskeiðinu verður farið yfir hvaða aðferðir er hægt að nota til að opna peysur sem prjónaðar eru í hring. Meta þarf hvaða aðferð hentar hverju sinni út frá því hvernig hráefnið er og því hvort uppklippilykkjurnar eru sléttar eða brugnar. Farið verður yfir hvernig reiknað er og tekið er upp fyrir listum og köntum, nokkrar aðferðir við hnappagöt, almennan frágang og mögulegar reddingar.
Tilvalið er fyrir þátttakendur að koma með peysu sem þeir eru að vinna að eða hafa lokið en eiga eftir að opna og fá aðstoð við að koma sér af stað í verkefninu.
Hvenær: Sunnudagur 9. júní kl: 9 - 12
Kennari: Sigurlaug Hauksdóttir
Taka með: Gamla ullarpeysu sem má æfa sig á eða prufur sem prjónaðar hafa verið með það fyrir augum að opna þær og setja á þær lista. Samsvarandi garn og prjóna.
Nauðsynleg kunnátta: Almenn prjónakunnátta er nauðsynleg.
Tunugmál: Íslenska
Námskeiðið er ætlað byrjendum í spuna og þeim sem vilja rifja upp gamla takta í tóvinnu. Á námskeiðinu verður farið í grunnatriði er varðar ull og ullarvinnslu.
Farið yfir eiginleika ullar
Sýndur munurinn á togi og þeli.
Sýnt hvernig á að taka ofan af ullinni
Kennt að kemba ullina
Kennt að spinna einband á rokk
Kennt að tvinna band
Kennt að ganga frá bandi til frekari nýtingar
Öll áhöld og efni verða á staðnum og spunnið er á Louet rokka sem ættaðir eru frá Hollandi en þeir hafa reynst vel fyrir byrjendur í spuna.
Eingöngu verður unnið með ullina sem er á staðnum. Hún er þvegin og tilbúin til notkunar.
Til viðmiðunar verður á fyrri hluta námskeiðsins farið yfir atriði frá 1 - 5 (af ofantöldu) og í seinni hlutanum verður farið yfir atriði 6 - 7 en að öðru leyti vinnur hver á sínum hraða.
Námskeiðið er 5 klst. langt.
Hvenær: Sunnudagur 9. júní - kl: 9 - 12 & 13.30 - 15.30
Kennari: Jóhanna Erla Pálmadóttir
Koma með: Allt efni er á staðnum.
Nauðsynleg kunnátta: Námskeiðið er fyrir byrjendur og þá sem vilja rifja upp verklagið.
Tungumál: Íslenska
Afgangsgarn er óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að prjóna og því meira sem prjónað er, því meiri afgangar safnast saman. Það getur reynst áskorun að finna hefðbundnar uppskriftir sem passa fyrir afgangana í réttu magni, lit og grófleika. Nálgunin sem kennd er á þessu námskeiði felst í að taka þennan fjölbreytileika garnsins og snúa honum upp í tækifæri til sköpunar.
Farið verður yfir nokkrar gagnlegar aðferðir sem nýtast við afgangaprjón og hvernig er hægt að leika sér með liti til að skapa einstakar flíkur. Að loknu námskeiði munu prjónarar geta nýtt alla sína afganga í hvaða flík sem er, jafnvel þá allra smæstu.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 13.45 - 16.45
Kennari: Nanna Einarsdóttir
Taka með: Þátttakendur þurfa að hafa með sér alls konar afgangsgarn til að gera tilraunaprufur, og prjóna sem hæfa garni. Gott er að hafa með nokkrar stærðir til að vera frjálsari með garnval í prufuna, t.d. 4.5 mm, 6 mm og 8 mm prjóna.
Nauðsynleg kunnátta: Almenn prjóna kunnátta, s.s. að geta fitjað upp, fellt af, prjónað slétt og brugðið.
Tungumál: Íslenska
Orkering er ævaforn aðferð við blúndugerð sem notast við hnúta og lykkjur.
Námskeiðið er fyrir algjöra byrjendur og einnig þau sem einhvern tímann lærðu að orkera en vilja rifja tæknina upp.
Á námskeiðinu verður farið yfir grunnaðferðirnar í orkeringu. Byrjað verður á því að vinda garnið á skytturnar og svo læra þátttakendur að ‘flippa hnútnum’, en það er undirstaða orkeringar. Þegar þátttakendur hafa náð tökum á hnútnum, gera þeir lítið blóm og læra þannig að orkera hringi, lykkjulauf og að tengja lykkjulaufin saman.
Á námskeiðinu verður farið yfir uppskriftarlestur. Þátttakendur fá útprentaðar uppskriftir að einföldum verkefnum.
Innifalið í námskeiðsgjaldinu er ein garndokka og skytta.
Hvenær: Sunnudagur 9. júní kl: 9 - 12
Kennari: Kristjana Kona
Taka með: Ekkert nema góða skapið
Nauðsynleg kunnátta: Námskeiðið er fyrir byrjendur og þá sem vilja rifja upp orkeringu.
Tungumál: Íslenska
Á námskeiðinu mun Thelma fara yfir allar helstu grunnaðferðir fyrir tvöfalt prjón. Farið verður yfir hefðbundna uppfitjunar aðferð fyrir tvöfalt prjón, sem og tveggja lita ítalska uppfitjun. Unnið verður með tvo liti og hvernig er hægt að vinna með mynsturgerð í tvöföldu prjóni. Einnig verður farið yfir hvernig hægt er að nýta sér tvöfalt prjón með 1 lit til að prjóna fald. Á námskeiðinu verður fitjað upp á litlum klút, sem hægt er að nýta sem tusku eða viskastykki. Þátttakendur fá efni til að vinna áfram og leika sér með aðferðirnar sem farið hefur verið yfir.
Hvenær: Laugardagur 8. júní kl: 9 - 12
Kennari: Thelma Steimann
Taka með: Þátttakendur verða að taka með sér í minnsta lagi 2-3 liti af bómullargarni fyrir prjónastærð 3 - 4 mm, 2x prjóna sem passa með garni eða hringprjóna, skæri og saumnál.
Tungumál: Íslenska
Þátttakendur munu læra ýmsar aðferðir við að létta frágang og gera prjónlesið fallegra. Kenndar verða nokkrar aðferðir við uppfit, t.d. hvernig er hægt að prjóna í báðar áttir, einfalda og skemmtilega leið til að gera fallega kanta, sérlega falleg hnappagöt, aðferðir til útaukningar og affellingu. Þátttakendur læra að gera styttar umferðir og fara yfir hvernig sú aðferð getur hjálpað við eitt og annað t.d. að gera hálsmál rúnaðra að framan eða prjóna rendur sem eru þríhyrningslaga.
Hvenær: Sunnudagur 9. júní kl: 9 - 12
Kennari: Anna Margrét Valgeirsdóttir
Taka með: Garn – nokkra liti og prjóna sem passa við grófleika garnsins
Tungumál: Íslenska