Nemendur Listaháskólans í starfsnámi

Nemendahópar frá Listaháskólanum hafa komið í starfsnám með kennurum sínum siðan 2012, en þau munu einnig dvelja hjá okkur nú 22. - 27.  janúar 2019. Á dagskrá eru heimsóknir í Gestastofu Sútarans, Ullarþvottastöðina á Blönduósi og Heimilisðnaðarsafnið, fyrirlestur um sögu textíls á Íslandi auk kennslu í útsaumi, prjóni og vefnaði og kynning á TC2 rafrænum vefstól sem staðsettur er í Kvennaskólanum. Sérfræðingar hússins á sviði textíls sjá um kennsluna. 

Starfsmenn Textílmiðstöðvarinnar hlakka alltaf til þessara heimsókna og við vonum að nemendur fari heim ánægðir og með nýjar þekkingu og hugmyndir í farteskinu.