Námskeið í skipulagningu og utanumhaldi viðburða

Námskeiðið er haldið á vegum Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra - SSNV og ætlað öllum þeim, sem eru að skipuleggja og halda utan um stóra og smáa viðburði og langar til þess að sækja sér viðbót í verkfærakistuna sína. Farið verður yfir hluti svo sem markmiðasetningu, markhópa, dagskrárgerð og kynningarmál og á að nýtast öllum reyndum sem óreyndum á þessu sviði. Aðalleiðbeinandi er Eygló Rúnarsdóttir aðjúnkt við HÍ, sem kennir viðburðastjórnun á þeim bæ, en auk hennar munu a.m.k. 2 aðilar líta við með reynslusögur úr þessum geira. 
Námskeiðið fer fram í Textílmiðstöð Íslands- þekkingarsetri á Blönduósi (kennslustofa í kjallara) og stendur frá kl. 9 – 16.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu, en það er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2018/19 á sviði ferðaþjónustu.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og gildir „fyrstur kemur, fyrstur fær“.

Skráning á heimasíðu SSNV, www.ssnv.is