Listasýning á bókasafninu

Listasýning á bókasafninu
 
Frá mánudegi 23. nóvember til fimmtudags 26. nóvember verður sýning á verkum Kärt Ojavee (Ph.D.) á bókasafninu á Blönduósi. Kärt er listamaður, hönnuður og fyrirlesari frá Eistlandi og styrkhafi í Textíllistamiðstöðinni (,,Nordic-Baltic scholarship" styrkt af Nordic Culture Point). Hún starfar einnig hjá innanhúsarktítektúrdeild Listaháskólans í Tallinn á sviði bíotextíl.
 
Kärt hefur verið í Textíllistamiðstöðinni síðan í október. Þar hefur hún unnið með mismunandi efni og veftækni og rannsakað hlutverk textíls í sögulegu og pólitísku samhengi.
 
Á bókasafninu mun hún sýna fjóra hluti ofna úr hvítu efni sem hafa sögulega þýðingu: sjal, klút, handklæði og höfuðfat. Sýningin er sett þannig upp að hægt er að sjá hana í gegnum stóra gluggann sem snýr að Blöndu. Ekki þarf að að fara inn á safnið. Tveir hlutir eru sýndir í einu og skipt verður um hluti á miðvikudag. 
 
Sýningin er undirbúningur fyrir stærri viðburð sem haldin verður í Tallinn í febrúar 2021 í HOP gallery.