,,Kickstart workshop" - heimsókn arkitektarnema

í lok júlí munu arktitektanemar frá Listaháskóla Íslands vera hjá okkur. Heimsóknin er í tengslum við verkefnið ,,Hugmyndavinna og framtíðarsýn fyrir húsakynni Kvennaskólans og Textílmiðstöðvar Íslands á Blönduósi" styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.

Verkefnið byggist á grunni sem var lagður í janúar 2020 þegar nemendur úr arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands dvöldu í Kvennaskólanum undir leiðsögn Birtu Fróðadóttur arkitekts. Í lok dvalarinnar var haldin kynningarfundur á hugmyndavinnu um notkunarmöguleikar á húsakynnum Kvennaskólans á Blönduósi. 

 

 

 

                                    Ljósmynd: Gömul bygging sem tilheyrir Kvennaskólann.